Download Adaptive Revisiting with Heritrix
Transcript
Útdráttur á íslensku Veraldarvefurinn geymir sívaxandi hluta af þekkingu og menningararfi heimsins. Þar sem Vefurinn er einnig sífellt að breytast þá er nú unnið ötullega að því að varðveita innihald hans á hverjum tíma. Þessi vinna er framlenging á skylduskila lögum sem hafa í síðustu aldir stuðlað að því að varðveita prentað efni. Fyrstu þrír kaflarnir lýsa grundvallar erfiðleikum við það að safna Vefnum og kynnir hugbúnaðinn Heritrix, sem var smíðaður til að vinna það verk. Fyrsti kaflinn einbeitir sér að ástæðunum og bakgrunni þessarar vinnu en kaflar tvö og þrjú beina kastljósinu að tæknilegri þáttum. Markmið verkefnisins var að þróa nýja tækni til að safna ákveðnum hluta af Vefnum sem er álitinn breytast ört og vera í eðli sínu áhugaverður. Seinni kaflar fjalla um skilgreininu á slíkri aðferðafræði og hvernig hún var útfærð í Heritrix. Hluti þessarar umfjöllunar beinist að því hvernig greina má breytingar í skjölum. Að lokum er fjallað um fyrstu reynslu af nýja hugbúnaðinum og sjónum er beint að þeim þáttum sem þarfnast frekari vinnu eða athygli. Þar sem markmiðið með verkefninu var að leggja grunnlínur fyrir svona aðferðafræði og útbúa einfalda og stöðuga útfærsla þá inniheldur þessi hluti margar hugmyndir um hvað mætti gera betur. Keywords Web crawling, web archiving, Heritrix, Internet, World Wide Web, legal deposit, electronic legal deposit. i