Download Skoða/Opna

Transcript
University of Akureyri
B.Sc. Dissertation
“T.R.Y. – Tarot Reading Yourself”
veldur hugljómun. Þetta spil er talið merkja umbreytingar á sama hátt og Dauðinn og fórnit til
guðanna, hreinsun og styrk hinnar nýju sálar. það bendir til samruna gerandi og þolandi afla,
samruna karlmennsku og hins kvenlega. Lækurinn sem engillinn stendur í að hluta, er sagður
tákna fortíð, nútíð og framtíð.
Merking:
Hófsemi, sparnaður, sameining, aðlögun, tilslökun tveggja eða fleiri til að ná sameiginlegu
takmarki, samvinna fremur en samkeppni. Velgengi vegna góðrar stjórnunar, líf, lífsþrek, andleg
meðvitund og gleði. Einnig getur þetta spil merkt hjónaband og auð.
Gagnstæð merking:
Slæmur félagsskapur, hagsmunir rekast á, klaufaleg meðhöndlun tækifæra.
Í samhengi við önnur spil:
Ef Hófsemi er á undan Réttlæti merkir það langdregið dómsmál og réttlátan dóm. Ef Réttlæti er á
undan merkir það að nokkur töf verður á þessu máli og jafnvel að vþí muni aldrei ljúka. Ef
Hófsemi er öfug nálægt Réttlæti merkir það hverskonar hik eða óákveðni. þegar Elskendurnir eru
með þessu spili táknar það óákveðni, hik og svik ástvinar.
Nr. 15
Heiti:
Djöfullinn (The Devil)
Táknræn merking:
Maðurinn í fjötrum hins illa sökum fávisku, ótta og hjátrúar. Tákn efnishyggju og yfirráða hins
líkamlega; spil holdlegra fýsna. Andspyrna, ofsafengni og tilfinningaleysi. Mikil völd og slæmur
ásetningur. Afl neikvæðra áhrifa.
Merking:
Óhjákvæmilegur atburður. Afleiðingu og áhrif hans má ráða af nálægum spilum. Freisting; ef
ekki er fallið fyrir henni mun það leiða til góðs. Samviskulaus ánauð annars manns. Veikindi;
ofsi; illa fenginn auður.
Gagnstæð merking:
Andleg lækning og vernd gegn hættum. Veikindum afstýrt eða lækning. Refsing. Jafnvel öfugt
boðar þetta spil nær óviðráðanlega freistingu, sem veldur ógæfu og eyðileggingu, og munu fáir
nógu sterkir til að standast hana.
Í samhengi við önnur spil:
Þegar Keisarinn kemur upp við hlið Djöfulsins og Djöfullinn er á undan merkir það einræði og
óróleika í öllu landinu. Ef Keisarinn er á undan, þó sérlega ef Djöfullinn er öfugur, merkir það að
þjóðhöfðingja eða öðrum háttsettum manni verði ógnað af illum utanaðkomandi öflum; að
háttsettur maður verði viðriðinn hneyksli eða að ill öfl vinni gegn honum. Ef Djöfullinn er á
undan Réttlæti merkir það að óréttlæti verði beitt, en ef Réttlæti er á undan merkir það að meintur
glæpamaður er saklaus. Ef Páfinn og Djöfullinn koma saman vega þau á móti hvort öðru eða
veikja merkingu hvors annars, Djöfullinn hefur þó meiri áhrif ef hann er á undan, merkingin fer
oftast eftir nálægum spilum.
Nr. 16
Heiti:
Turninn (The Tower)
Táknræn merking:
Hörmungar og skyndilegar breytingar. Holdleg fýsn. Endir hinnar eilífu hringrásar Karma.
Snúningur hjólsins stöðvast. Hugljómun og þekking. Sólskinið gæti táknað vitrun og að ímyndun
og draumórar verði færð til rétts vegar til þess að byggja upp sstöðugan lífsgrundvöll. Það táknar
stjórnarfarslegar breytingar og upprætingu spillingar.
Merking:
Óvænt áfall eða hörmungar, frelsun, lausn, breyting sem mun leiða til hamingju, uppræting
sjálfselsku, breyting á lífsviðhorfi, venjur véfengdar, villandi metnaður upprættur, eignamissir,
hugljómun.
Gagnstæð merking:
LOK0283
Dr. Nicola J. Whitehead
Page 79
18.04.2006
Martha Dís Brandt