Download Skoða/Opna
Transcript
University of Akureyri B.Sc. Dissertation “T.R.Y. – Tarot Reading Yourself” veldur hugljómun. Þetta spil er talið merkja umbreytingar á sama hátt og Dauðinn og fórnit til guðanna, hreinsun og styrk hinnar nýju sálar. það bendir til samruna gerandi og þolandi afla, samruna karlmennsku og hins kvenlega. Lækurinn sem engillinn stendur í að hluta, er sagður tákna fortíð, nútíð og framtíð. Merking: Hófsemi, sparnaður, sameining, aðlögun, tilslökun tveggja eða fleiri til að ná sameiginlegu takmarki, samvinna fremur en samkeppni. Velgengi vegna góðrar stjórnunar, líf, lífsþrek, andleg meðvitund og gleði. Einnig getur þetta spil merkt hjónaband og auð. Gagnstæð merking: Slæmur félagsskapur, hagsmunir rekast á, klaufaleg meðhöndlun tækifæra. Í samhengi við önnur spil: Ef Hófsemi er á undan Réttlæti merkir það langdregið dómsmál og réttlátan dóm. Ef Réttlæti er á undan merkir það að nokkur töf verður á þessu máli og jafnvel að vþí muni aldrei ljúka. Ef Hófsemi er öfug nálægt Réttlæti merkir það hverskonar hik eða óákveðni. þegar Elskendurnir eru með þessu spili táknar það óákveðni, hik og svik ástvinar. Nr. 15 Heiti: Djöfullinn (The Devil) Táknræn merking: Maðurinn í fjötrum hins illa sökum fávisku, ótta og hjátrúar. Tákn efnishyggju og yfirráða hins líkamlega; spil holdlegra fýsna. Andspyrna, ofsafengni og tilfinningaleysi. Mikil völd og slæmur ásetningur. Afl neikvæðra áhrifa. Merking: Óhjákvæmilegur atburður. Afleiðingu og áhrif hans má ráða af nálægum spilum. Freisting; ef ekki er fallið fyrir henni mun það leiða til góðs. Samviskulaus ánauð annars manns. Veikindi; ofsi; illa fenginn auður. Gagnstæð merking: Andleg lækning og vernd gegn hættum. Veikindum afstýrt eða lækning. Refsing. Jafnvel öfugt boðar þetta spil nær óviðráðanlega freistingu, sem veldur ógæfu og eyðileggingu, og munu fáir nógu sterkir til að standast hana. Í samhengi við önnur spil: Þegar Keisarinn kemur upp við hlið Djöfulsins og Djöfullinn er á undan merkir það einræði og óróleika í öllu landinu. Ef Keisarinn er á undan, þó sérlega ef Djöfullinn er öfugur, merkir það að þjóðhöfðingja eða öðrum háttsettum manni verði ógnað af illum utanaðkomandi öflum; að háttsettur maður verði viðriðinn hneyksli eða að ill öfl vinni gegn honum. Ef Djöfullinn er á undan Réttlæti merkir það að óréttlæti verði beitt, en ef Réttlæti er á undan merkir það að meintur glæpamaður er saklaus. Ef Páfinn og Djöfullinn koma saman vega þau á móti hvort öðru eða veikja merkingu hvors annars, Djöfullinn hefur þó meiri áhrif ef hann er á undan, merkingin fer oftast eftir nálægum spilum. Nr. 16 Heiti: Turninn (The Tower) Táknræn merking: Hörmungar og skyndilegar breytingar. Holdleg fýsn. Endir hinnar eilífu hringrásar Karma. Snúningur hjólsins stöðvast. Hugljómun og þekking. Sólskinið gæti táknað vitrun og að ímyndun og draumórar verði færð til rétts vegar til þess að byggja upp sstöðugan lífsgrundvöll. Það táknar stjórnarfarslegar breytingar og upprætingu spillingar. Merking: Óvænt áfall eða hörmungar, frelsun, lausn, breyting sem mun leiða til hamingju, uppræting sjálfselsku, breyting á lífsviðhorfi, venjur véfengdar, villandi metnaður upprættur, eignamissir, hugljómun. Gagnstæð merking: LOK0283 Dr. Nicola J. Whitehead Page 79 18.04.2006 Martha Dís Brandt